Skip to main content

Elkem Ísland er hluti af sterkri alþjóðlegri heild, Elkem ASA, sem er einn af helstu framleiðendum kísilafurða í heiminum. Elkem sagan er 118 ára en félagið var stofnað í Noregi árið 1904 af Sam Eyde.

Aðalframleiðsluvörur fyrirtækisins eru kísilmálmur, kísiljárn og rafskaut og skyld efni úr kolefni.

Stefna Elkem ASA er að valda sem minnstri röskun á náttúrunni og leggur fyrirtækið mikla áherslu á umhverfismál og að takmarka umhverfisáhrif allrar framleiðslu, ásamt því að skapa öruggt og gott vinnuumhverfi fyrir starfsmenn sína.

Elkem ASA rekur 31 verksmiðjur út um allan heim og eru höfuðstöðvar Elkem staðsettar í Noregi. Um 6.800 manns starfa hjá fyrirtækinu og eru um 500 starfsmenn í rannsóknum og þróunarstarfi. Velta Elkem ASA árið 2019 var um 2,1 milljarðar EUR. Forstjóri félagsins er Helgi Aasen.

Viðskiptaeiningum Elkem ASA er skipt upp í þrjú svið:

Elkem AS er í eigu China National Bluestar. Bluestar keypti Elkem af Orkla ASA í Noregi. Þann 11. janúar 2011 var tilkynnt að Orkla ASA hafði undirritað bindandi samning við China National Bluestar um kaup og sölu á Elkem. Söluferlinu lauk þann 14. apríl 2011.

Frekari upplýsingar um Elkem ASA má finna á www.elkem.com